Ræktun
|
Fyrsta merin í okkar ræktun var
gæðingamóðirin Gyðja frá Stokkhólma. Annað folaldið var svo hinn brúnskjótti Kofri frá Morastöðum, undan Hauk frá Akurgerði. Hann komst einnig í fyrstu verðlaun með 8.31 fyrir hæfileika en nú er klárinn í Svíþjóð. Undan Kofra hafa svo komið mörg góð hross,
en einna helsta stendur Gangster frá Sperðli þar upp úr. Hans afkomendur
eru einnig að reynast vel, en lítið af þeim er komið á tamningaraldur. Fótlyfta
og rúmur alhliða gangur einkenna afkvæmi Gangsters. Út af Gyðju eru mörg af okkar bestu hrossum
komin og reynum við því að halda fast í þá blóðlínu. Gyðja var undan Rauð 618
frá Kolkuósi og Nótt frá Kirkjubæ, sem gaf ófáá gæðingana. Einnig erum við með
nokkrar aðkeyptar merar og mun tíminn leiða í ljós hvað verður úr þeim.
*Myndirnar eru af hrossunum sem eru feitletruð og eftir röð |
