News
3.5.2009
Myndir
Nú er verið að gera algjöra tiltekt á síðunni, en eins og margir hafa tekið eftir er frekar lítið búið að vera gerast undanfarið. Það á þó að bæta úr því og koma þessu aftur í gang og nú er engin smá myndaveisla komin inn.
Þar sem öll hrossin voru tekin heim og færð um hólf síðustu daga var farið og tekið nýjar og skemmtilegar myndir af öllum trippunum og graðtittunum. Hellingur af myndum er komið inn og einnig eru fullt af myndum væntanlegar.
Þar sem nú fara folöld ársins að koma er búið að setja 2008 folöldin í trippi og nýjar myndir af þeim með, en einnig eru komnar nýjar myndir af eldri trippunum.
Ofsi frá Smáratúni er einn af graðtittunum en hann er undan Sinir frá Hábæ og Dúllu frá Ási 2. Ofsi er virkilega fallegur foli með rosalega spes lit en hann er rauðslettuskjóttur hringeygður. Hann fer um á bullandi tölti með hárri fótlyftu og virðist ætla vera virkilega áhugaverður og efnilegur foli.
Ungu geldingarnir fengu einnig að láta ljós sitt skína í myndatökunni en við tókum nýjar myndir af öllum geldingunum fæddum 2005. Gæi frá Smáratúni er einn af þeim en hann er brúnblesóttur foli undan Glæsi frá Litlu-Sandvík og Stjörnu frá Stokkhólma. Hann er alveg virkilega flottur og álitlegur hestur sem virðist ætla vera feikna rúmur og með háa fótlyftu.
Dæmi um mertrippi sem teknar voru myndir af eru Katla og Assa frá Smáratúni. Katla er 3 vetra meri undan Hilmi(Gangster) frá Sperðli og Sóldísi frá Stóra-Langadal. Hún fer um á flottu brokki með flottri fótlyftu en afkvæmi Hilmis(Gangsters) eru óhrædd við að sýna hvað í þeim býr.
Assa frá Smáratúni er 2 vetra meri undan Rólex frá Ólafsbergi og Golu frá Akranesi. Hún lét sko ekki sitt eftir og sýndi alveg flugrúmt brokk með mikilli lyftu. Assa er mjög álitleg og efnileg meri sem spennandi verður að fylgjast með.
Þetta er einungis brot af öllu sem komið er og koma verður svo fylgist vel með.
Eldra efni
