News

31.7.2008

Ný Söluhross



Þá eru loks komin ný hross á sölusíðurnar. Við höfum bætt við helling af trippum og einnig eru mörg folöld, fædd þetta sumarið komin inn á. Við ákváðum loks að smala saman hrossunum upp á efstu-mýri svo hægt væri að skella nokkrum myndum af þeim hingað inn. Þau voru öll í rosalegu fínu standi, folöldin orðin búttuð og fín og trippin búin að þroskast gríðarlega.
Á döfinni eru fleiri myndir af tittunum, nýjum folöldum og svo einhverju öðru sem kemur upp.


Sandra og Spói á góðum sumardegi

Viljum einnig endilega minna á það að frábærum og skemmtilegum kettlingum vantar heimili, en það eru 3 þrílitar læður, 1 svört og hvít læða og svo 1 gulbröndóttur högni.


Gotið hjá Skutlu

Svo er það gotið hjá Jasmín, en í því eru 2 högnar, bröndóttur og svo annar svartur og hvítur(loðinn), meðan læðan er þrílit(loðin).


Læðan undan Jasmín og Högna


Skrifað 31.7.2008 kl. 17:58 af Smárahestar

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 146
Gestir í dag: 29
Flettingar í gær: 246
Gestir í gær: 53
Samtals flettingar: 258487
Samtals gestir: 49827
Tölur uppfærðar: 1.8.2010 09:51:42