News

25.5.2008

Fimm merar!



Enn sem komið er eru fimm folöld fædd hér að Smáratúni, og viti menn - allt merar!
Meyja frá Höfn 2 kastaði bleikálóttri meri undan Herkúles frá Stóra-Langadal og hlaut sú skvísa nafnið Ólympía.
Tófa frá Eyrabakka kastaði þeim skemmtilega lit,  leirljósblesóttu folaldi en hún er kölluð Sýn frá Smáratúni og er undan fyrstu verðlauna Töfrasyni, Sjón frá Hákoti. Sýn er síðasta folaldið sem við fáum undan Tófu.
Gáta frá Smáratúni gekk með fyli undan Gangster frá Sperðli og kastaði  jarpskjóttri píu um daginn, en hún hlaut einmitt nafnið Pía frá Smáratúni.
Snót frá Sperðli kastaði jarpri hryssu undan Herkúles frá Stóra-Langadal og köllum við merina Filmu frá Smáratúni en hún er jörp eins og móðir sín.
Í fyrradag kastaði leirljósa merin, Salka frá Álfhólahjáleigu brúnskjóttri meri undan Gangster frá Sperðli, en folaldið heitir Skutla frá Smáratúni.




Ólympía frá Smáratúni kíkir á ljósmyndarann.

Fleiri myndir má sjá
hér

Skrifað 25.5.2008 kl. 20:11 af Smárahestar

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 220
Gestir í dag: 30
Flettingar í gær: 246
Gestir í gær: 53
Samtals flettingar: 258561
Samtals gestir: 49828
Tölur uppfærðar: 1.8.2010 10:33:52