News

30.5.2010

Öskufok

Þó svo að aska hafi ekki fallið í nokkurn tíma hérna í Fljótshlíð frá Eyjafjallajökli, er talsvert um öskufok þessa dagana hjá okkur. Þessar myndir voru teknar kl 5 í dag og eru því miður ekki fögur sjón.

Even thought ash hasn't fallen in quite some time here in Fljótshlíð from Eyjafjallajökull, there's some ash still drifting around these days. This photos were taken today at 5 p.m, but it isn't the most beautiful view that we could have.









Skrifað 30.5.2010 kl. 23:39 af Smárahestar

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

30.5.2010

Draumur


Dís (minna drauma) frá Leirubakka kastaði um daginn jarpskjóttu hestfolaldi undan Herkúles frá Stóra-Langadal sem hlotið hefur nafnið Draumur. Það er þriðja folaldið sem kemur, en síðan hafa komið nokkur í viðbót sem munu koma inn á síðuna von bráðar.

Dís (minna drauma) frá Leirubakka gave birth the other day, but it was a bay pinto horse sired by Herkúles frá Stóra-Langadal and he has got the name Draumur, but it means "a dream". This is our third foal, but since then a few more have come and they will come on the website shortly.






Skrifað 30.5.2010 kl. 15:58 af Smárahestar

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

17.5.2010

Folöld


Nú er sko heldur betur byrjað að færast líf í tuskurnar þrátt fyrir hestapest og öskufall. Það eru fædd tvö folöld enn sem komið er, en það er jöfn skipting fram að þessu, einn hestur og ein meri.

Now there's enough going on, despite of the horse disease that's going around here in Iceland and volcanic eruption in Eyjafjallajökull. There has been born two foals so far, one horse and one mare.





Hvessir er brúnn og er undan Heklu frá Höfn og Eldjárni frá Tjaldhólum.
Hvessir is black and is sired by Eldjárn frá Tjaldhólum and his dam is Hekla frá Höfn.




Sól og heimasætan Lilja Dögg

Sól er rauð og er undan Sóley frá Lækjarbakka og Storm frá Leirulæk.
Sól is chestnut and is sired by Stormur frá Leirulæk and her dam is Sóley frá Lækjarbakka.


Það er nú ekki hægt að segja annað en að þetta sé einn skemmtilegasti tími ársins, þegar folöldin fæðast, en nú bíðum við bara spennt eftir restinni af folöldunum.

We can't say that this isn't one of the most enjoyable times of the year, when the foals are born, but we're excited for the rest of the foals.

Skrifað 17.5.2010 kl. 0:07 af Smárahestar

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

12.5.2010

Heljar frá Smáratúni


Hinn efnilegi ungfoli, Heljar frá Smáratúni, er laus til útleigu sumarið 2010.

Heljar er undan 1. verðlauna gæðingnum Kolfinni frá Kjarnholtum og Hryðju frá Akranesi. Hann er virkilega þroskaður foli, bæði andlega og líkamlega og er alveg þrælefnilegur. Hann er núna inni í þjálfun hjá okkur í Eyvindarmúla.
Heljar er fimmgangshestur sem virðist ætla lofa mjög góðu. Hann er með alveg eðal geðslag, rólyndur og góður í umgengni og auðveldur en mjög skemmtilegur í reið.

Nánari upplýsingar má finna hér, og í síma 8696888 eða á netfangið smaratun@gmail.com







Skrifað 12.5.2010 kl. 0:44 af Smárahestar

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

11.5.2010

Snilld frá Leysingjastöðum II




Snilld frá Leysingjastöðum II er 4 vetra brúnskjótt hryssa til sölu. Hún er mjög efnileg með flottar hreyfingar. Nánari upplýsingar um Snilld má finna hér.

Snilld frá Leysingjastöðum II is a 4 year old black pinto mare for sale. She's very promising with great potential. More information of Snilld can be found here.


Skrifað 11.5.2010 kl. 21:43 af Smárahestar

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

8.5.2010

Two new geldings for sale

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 12
Gestir í dag: 4
Flettingar í gær: 356
Gestir í gær: 87
Samtals flettingar: 266664
Samtals gestir: 52053
Tölur uppfærðar: 8.9.2010 01:35:51