News

28.10.2009

Haki og Þerna


Tvö ný hross eru komin á sölulistann, en það eru þau Haki og Þerna frá Þúfu.

IS2002184552 - Haki frá Þúfu



Haki er 7 vetra brúnn geldingur undan Hektor frá Akureyri og Heru frá Þúfu. Haki er alhliða hestur og er alveg tilvalinn fyrir alla fjölskylduna. Geðgóður og góður hestur fyrir unga sem aldna.

Haki is 7 year old black gelding sired by Hektor frá Akureyri and Hera frá Þúfu. Haki is 5-gaited and is perfect for the whole family. Great and genuine horse for everybody.



IS2002284554  - Þerna frá Þúfu




Þerna er 7 vetra brún hryssa undan Þorra frá Þúfu og Stjörnudís frá Þúfu. Hún er alhliða hryssa og gæti hentað sem frábært fjölskylduhross. Hún er mjög faxprúð og myndarleg hryssa og gæti hæglega orðið frábært reiðhross með ögn meiri þjálfun.

Þerna is a 7 year old black mare sired by Þorri frá Þúfu and Stjörnudís frá Þúfu. She's a 5-gaited mare and could suit the whole family. She has much mane and she's really good looking mare. Þerna could easily become a great riding horse with further training.


Skrifað 28.10.2009 kl. 22:38 af Smárahestar

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

21.10.2009

Króna og Dagrenning


Hérna eru tvær nýjar merar sem eru komnar á sölulistann, þær Króna frá Grund og Dagrenning frá Sperðli. Báðar ósköp ljúf og góð hross fyrir alla.

IS1997275540 - Króna frá Grund




Króna er jörp klárhryssa með tölti undan Glað frá Sauðárkróki og Kolku frá Brimnesi.Hún er þæg og góð klárhryssa með tölti sem hentar fyrir alla þá sem eitthvað hafa farið á hestbak. Hún er hágeng og töltir upp í milliferð sem stendur. Skemmtilegt, hentugt og snyrtilegt hross fyrir byrjendur sem og vana knapa.

Króna is a bay 12 year old mare sired by Glaður frá Sauðárkróki and Kolka frá Brimnesi. She is very genuine and good 4-gaited mare who can suit beginners who have some riding expirience. She has high leg action and tölts up to average speed at the time being. Fun, suitable and nice looking mare for beginners as used riders.



IS2000284700 - Dagrenning frá Sperðli



Dagrenning er 9 vetra brún hryssa undan Hjörvari frá Arnarstöðum og Iðu frá Steinum. Hún er alhliða hryssa sem hentar fyrir alla sem eitthvað hafa farið á hestbak. Hún á það til að vera bundin í byrjun þjálfunar, en hún er einmitt nýkomin á hús núna. Fínt hross fyrir alla fjölskyldumeðlimina.

Dagrenning is a 9 year old black mare sired by Hjörvar frá Arnarstöðum and Iða frá Steinum. She is 5-gaited mare who suits beginners who have some riding expirience. She can mix pace and tölt together in the beginning of the training, but she was recently taken to the stable from the field. Good horse for all family members.


Skrifað 21.10.2009 kl. 14:00 af Smárahestar

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

20.10.2009

Víðir og Segull


Höfum bætt nokkrum hrossum við á sölulistann, meðal annars þessum tveim eðal geldingum :

Víðir frá Kjartansstöðum



Víðir er eðal fimmgangshestur undan Elrir frá Heiði og Tjáningu frá Kjartansstöðum. Hann er með frábærar gangtegundir, mikinn vilja og góð gangskil. Víðir er alveg meiriháttar reiðhestur fyrir vanan knapa en einnig alveg upplagður í fimmgangskeppni.


Víðir is a luxuary five-gaited gelding sired by Elrir frá Heiði and Tjáning frá Kjartansstöðum. He has great gaits and much spirit. Víðir is an outstanding riding horse for used riders and also he's great for 5-gaited competitions.


Segull frá Sperðli



Segull er 13 vetra fimmgangshestur undan Pilti frá Sperðli og Yrpu frá Sandhólaferju. Hann er mjög traustur og góður hestur sem hentar fyrir alla sem hafa eitthvað farið á bak áður. Segull er vanur hestaferðum og hefur verið mikið í þeim undanfarin ár og er því mjög harður af sér. Frábær fjölskylduhestur.

Segull is a 13 year old 5-gaited horse sired by Piltur frá Sperðli and Yrpa frá Sandhólaferju. He is very stable and genuine horse who everybody who have some riding expirience can ride. Segull is used to horsetrips and has been in many horsetrips last couple of years and is therefor very though and efficient. A great family horse.

Skrifað 20.10.2009 kl. 18:38 af Smárahestar

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

13.10.2009

Ylfa frá Hala



Erum búin að bæta inn nýrri meri, henni Ylfu frá Hala

Ylfa er jörp fjórgangsmeri undan Glitra frá Reykjavík (sem er undan Þokka frá Garði) og Leiru frá Hala. Hún er flott meri en á meira inni með frekari þjálfun og þegar hún er komin í almennilegt form en við erum nýbúin að taka hana inn.
Verð : 350.000 ISK




Skrifað 13.10.2009 kl. 21:54 af Smárahestar

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 220
Gestir í dag: 30
Flettingar í gær: 246
Gestir í gær: 53
Samtals flettingar: 258561
Samtals gestir: 49828
Tölur uppfærðar: 1.8.2010 10:33:52