News

20.5.2009

Fleiri folöld

Þá eru tvær merar til viðbótar búnar að kasta, en  Meyja frá Höfn kastaði brúnu hestfolaldi undan Glæsi frá Litlu-Sandvík 19 maí og Hekla frá Höfn kastaði rauðu hestfolaldi undan Storm frá Leirulæk 20 maí.



Hekla að kasta





Bæði folöldin braggast vel, en sá brúni fékk nafnið Máttur en sá rauði Hvinur.
Hestfolaldið undan Betu frá Forsæti og Stæl frá Neðra-Seli fékk svo nafnið Barón en Beta fór undir Ás frá Ármóti.

Nokkrum myndum var smellt af á meðan köstun stóð svo hérna eru þeir alveg nýjir.


Máttur nýkastaður


Skrifað 20.5.2009 kl. 21:33 af Smárahestar

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

9.5.2009

Fyrsta folaldið


Það er alltaf jafn gaman þegar nýtt líf kemur í heiminn, en sérstaklega þegar vonin um upprennandi gæðing er til staðar.
Fyrsta folaldið á þessum bæ kom í heiminn í gær. Myndirnar voru teknar nokkrum klukkustundum eftir köstun, en eins og sést þá er maður svolítið lítill og kraminn á þessum myndum.
Þetta er móálótt hestfolald undan Betu frá Forsæti og Stæl frá Neðra-Seli.
Svo verður það ósköp gaman að fylgjast með hinum folöldunum sem óðum fara að koma í heiminn.






Skrifað 9.5.2009 kl. 13:05 af Smárahestar

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

3.5.2009

Myndir


Nú er verið að gera algjöra tiltekt á síðunni, en eins og margir hafa tekið eftir er frekar lítið búið að vera gerast undanfarið. Það á þó að bæta úr því og koma þessu aftur í gang og nú er engin smá myndaveisla komin inn.

Þar sem öll hrossin voru tekin heim og færð um hólf síðustu daga var farið og tekið nýjar og skemmtilegar myndir af öllum trippunum og graðtittunum. Hellingur af myndum er komið inn og einnig eru fullt af myndum væntanlegar.
Þar sem nú fara folöld ársins að koma er búið að setja 2008 folöldin í trippi og nýjar myndir af þeim með, en einnig eru komnar nýjar myndir af eldri trippunum.

Ofsi frá Smáratúni er einn af graðtittunum en hann er undan Sinir frá Hábæ og Dúllu frá Ási 2. Ofsi er virkilega fallegur foli með rosalega spes lit en hann er rauðslettuskjóttur hringeygður. Hann fer um á bullandi tölti með hárri fótlyftu og virðist ætla vera virkilega áhugaverður og efnilegur foli.



Ungu geldingarnir fengu einnig að láta ljós sitt skína í myndatökunni  en við tókum nýjar myndir af öllum geldingunum fæddum 2005. Gæi frá Smáratúni er einn af þeim en hann er brúnblesóttur foli undan Glæsi frá Litlu-Sandvík og Stjörnu frá Stokkhólma. Hann er alveg virkilega flottur og álitlegur hestur sem virðist ætla vera feikna rúmur og með háa fótlyftu.



Dæmi um mertrippi sem teknar voru myndir af eru Katla og Assa frá Smáratúni. Katla er 3 vetra meri undan Hilmi(Gangster) frá Sperðli og Sóldísi frá Stóra-Langadal. Hún fer um á flottu brokki með flottri fótlyftu en afkvæmi Hilmis(Gangsters) eru óhrædd við að sýna hvað í þeim býr.



Assa frá Smáratúni er 2 vetra meri undan Rólex frá Ólafsbergi og Golu frá Akranesi. Hún lét sko ekki sitt eftir og sýndi alveg flugrúmt brokk með mikilli lyftu. Assa er mjög álitleg og efnileg meri sem spennandi verður að fylgjast með.



Þetta er einungis brot af öllu sem komið er og koma verður svo fylgist vel með.


Skrifað 3.5.2009 kl. 0:29 af Smárahestar

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 171
Gestir í dag: 29
Flettingar í gær: 246
Gestir í gær: 53
Samtals flettingar: 258512
Samtals gestir: 49827
Tölur uppfærðar: 1.8.2010 10:12:49