News

14.6.2008

Nýjar myndir



Það eru komnar myndir af hvolpunum þeirra Lexí og Tryggs og einnig af Heklu frá Höfn, en hún fór í fyrstu verðlaun í Hafnarfirði fyrr í vikunni. 

Annars er bara allt gott að frétta, alltaf nóg af hrossum og einnig erum við búin að fá okkur nýja tjúa tík, hana Lísu sem er einungis nokkurra mánaða og svo border collie tíkina, hana Snotru.
Myndir af þeim koma á næstunni.

 



Skrifað 14.6.2008 kl. 13:03 af Smárahestar

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

8.6.2008

Alltaf sama fjörið...



Það er margt og mikið að gerast að Smáratúni þessa dagana, en folöldin koma hvert af öðru og önnur ungstyrni einnig.
Lexí, chihuahua tíkin okkar er gaut hvolpum undan Trygg 6 maí síðastliðinn. Einnig gaut læðan á svæðinu, hún Skutla,  kettlingum 4 júní. Tvær aðrar læður eiga einnig von á sér á næstu vikum svo ef einhver hefur áhuga, þá höfum við mikið úrval af kettlingum þetta sumarið.

Myndir af folöldunum eru komnar inn á, en það eru t.d. jörp meri undan Herkúles og Ófeigu, brúnskjótt meri undan Betu og Klett frá Hvammi, brúnskjóttur hestur undan Gangster, Bleiksjóttur hestur undan Siddí og Herkúles og svo bleikskjótt hryssa undan Fiðlu og Gangster.
Endilega kíkið á myndirnar, myndir af hvolpunum, kettlingum og vinnufólkinu í sumar koma inn á næstu dögum! Stay tuned...

Skrifað 8.6.2008 kl. 23:55 af Smárahestar

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 114
Gestir í dag: 24
Flettingar í gær: 246
Gestir í gær: 53
Samtals flettingar: 258455
Samtals gestir: 49822
Tölur uppfærðar: 1.8.2010 09:29:52