News

29.2.2008

Allt komið í form



Nú fyrst eru gæðingarnir farnir að sjást á götum Þykkvabæjar.
Ásamt tamningartrippum erum við með okkar eigin hross sem við erum búin að vera þjálfa á fullu samhliða tamningunum. Meðal þeirra eru Hekla frá Höfn, en hún er komin í þrusugott form og búin að taka þátt í tveimur vetrarleikum, þar sem hún hreppti 1. og 2. sæti.
Einnig er Smári frá Smáratúni, geldingur á 10. vetri komin í hörkuform, Og síðast en hreint ekki síst er höfðinginn á bænum, hann Herkúles frá Stóra-Langadal, 19 vetra gamall komin í sitt besta form. Hann svífur nánast áfram á sínu rúma tölti.

Það eru komnar nýjar myndir af þeim öllum í
Hross í okkar eigu ásamt umsögnum
.

 
Sá gamli í hörkustuði


Skrifað 29.2.2008 kl. 23:00 af Smárahestar

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

29.2.2008

Hestar til sölu



Það eru alltaf mörg hross hjá okkur til sölu, og alltaf eitthver að bætast við sem ekki eru enn komin inn á síðuna. Svo það er um að gera að hafa samband símleiðis við okkar og spyrja, ef þið sjáið ekki eithvað sem hentar hér á síðunni og það getur vel verið að við eigum eða vitum um eitthverja hesta sem henta. Við sjálf erum með allt frá tamningartrippum til vel tamdra og þægra hesta.

Dýnus frá Leirulæk er til sölu, en hann er geldingur á 9 vetri, mjög þægur og þjáll hestur. Meiri upplýsingar um hann er að finna í Hestar til sölu - Geldingar.


 Dýnus

Einnig er graðfolinn Plútó frá Þorkelshóli 2 til sölu, en hann er brúnskjóttur foli á 4 vetur.
Hann er 2 mánaða taminn og lofar mjög góðu, góðar gangtegundir og flottur fótaburður. Meiri upplýsingar um hann er að finna í
Hestar til sölu - Geldingar

 Plútó





Skrifað 29.2.2008 kl. 0:09 af Smárahestar

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

3.2.2008

Vetrarhörkur

Frostið hefur verið heldur mikið hér í Þykkvabænum undafarna daga, en það var um 18 - 19 stiga gaddur.
Útigangurinn hefur þó þraukað frostið vel af sér, en við erum að gefa þeim þónokkuð vel núna þar sem veðurfarið hefur ekki verið sem best. Folaldsmerarnar hafa það þó fínt, og eru vel við spikið þrátt fyrir vetrarhörkurnar en við erum búin að taka veturgömlu trippin heim að húsi og gefum þeim þar.
Við erum heldur betur búin að fá almennilegann vetur þetta árið!

Reiðskemman kemur sér einkar vel í þessu frosti, þar sem nánast ekkert að hægt að ríða út í svona veðri.

Meðfylgjandi eru myndir af vetrinum hér í Þykkvabænum og af útiganginum.



Folaldsmerarnar í góðu atlæti



Einnig voru þar litfögur trippi á 3 og 4 vetur



Þau voru líka misáhugasöm um myndatökumanninn



Þetta er alvöru snjór, hér í Þykkvabænum!



Þetta er víst garðurinn, en það er nú varla að sjá í þessum snjóskafl



Á þetta grýlukerti ekki skilið inngöngu í World Records bókina!?

Skrifað 3.2.2008 kl. 1:46 af Smárahestar

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 171
Gestir í dag: 29
Flettingar í gær: 246
Gestir í gær: 53
Samtals flettingar: 258512
Samtals gestir: 49827
Tölur uppfærðar: 1.8.2010 10:12:49